Hávar M. Grímsson
Submitted by totil on lau, 09/19/2009 - 11:51

Vorum við ekki annars búin að fara yfir þetta? Mig minnir endilega að þetta standi í samningnum. Auk þess eruð þið að hagnast! Ekki gleyma því! Hagnast!
Hávar M. Grímsson hreyfði stóran kjaftinn eins og hann væri að glefsa í ósýnilegt góðgæti í loftinu.
– Hagnast! Hagnast! Allt í einu tók hann eftir litlu stelpunni þar sem hún stóð í dyragættinni og horfði á hann þung á brún.
– Nei, hvað sé ég? Er hún ekki komin litla prinsessan? vældi hann smjaðurslega.

