Gullborgarinn
Submitted by totil on lau, 09/19/2009 - 11:49

Hávar veiddi lítinn úðabrúsa með gulldufti upp úr skjalatöskunni. Hann úðaði gullinu varlega yfir hamborgarann sem varð á svipstundu eins og hann væri úr gulli. Það kom örlítill málmkeimur en það varð að hafa það. Gull var gull. Hávar var alvöru auðmaður.

