HÖFUNDUR
Þórarinn Leifsson er fæddur 1966. Hann stundaði myndlistarnám við Listaháskóla Íslands á árunum 1984-1989, á því tímabili gerðist hann einnig götulistmálari í Evrópu. Eftir útskrift starfaði hann við myndskreytingar og vefhönnun. Hann hefur myndskreytt bækur, bókakápur og blaðagreinar. Meðal verka hans eru myndskreytingar við röð ævintýra eftir H.C. Andersen sem kom út víða á Norðurlöndum.
Hann var meðhöfundur að barnasögunni Algjört frelsi (2001) ásamt Auði Jónsdóttur. Fyrsta skáldsaga hans handa börnum, Leyndarmálið hans pabba, kom út árið 2007 á Íslandi. Hún hefur verið þýdd og gefin út í Þýskalandi og Danmörku.
- Innskráning eða nýskráning til að skrifa athugasemdir
English

