Bankaplánetan
Submitted by totil on lau, 09/19/2009 - 10:46

– Gullbankinn er mjög skrítinn banki.
– Hvernig þá?
– Æ, þú veist. Þú hlýtur að horfa stundum á auglýsingarnar á flatskjánum? Frelsi til að eignast. Kauptu núna. Við lánum þér út á framtíðina, segja þeir.
– Já. Auðvitað hef ég séð þessar auglýsingar, sagði Albertína.
– Ókei. Þú færð lánaða peninga hjá bankanum til að kaupa hús eða nýjan bíl. Þú borgar af láninu einu sinni í mánuði.
– Er eitthvað skrítið við það? spurði Albertína.
– Í sjálfu sér ekki. Gallinn er bara sá að skuldin hækkar því meira sem er borgað af láninu.
– Ha? Á það ekki einmitt að vera öfugt?

