Amma Huld og bækurnar hennar
Submitted by totil on fös, 09/18/2009 - 11:23

– Ég hef aldrei nokkurn tíma tímt að henda bók, sagði amma Huld. Það er svo merkilegt við þessar skræður að það sem maður les í þeim, það lifir með manni, bætti hún við og varð dreymin á svipinn.
– Hvernig þá? spurði Albertína.
Amma Huld glotti svo breitt að fleiri en ein skögultönn komu í ljós.
– Sumum bókum þarf að smakka á sem snöggvast, sagði hún, aðrar þarf að gleypa í heilu lagi, loks eru þær sem þarf að japla á og melta síðan. En þær lifa allar með þér. Já, það má segja að þú verðir að því sem þú lest.

