Þórarinn Leifsson hlaut í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir Bókasafn ömmu Huldar sem hann jafnframt myndskreytti.Verðlaun fyrir bestu þýðingu barnabókar fær Jón Hallur Stefánsson fyrir bókina Þjófadrengurinn Lee Raven eftir Zizou Corder.
Ég verð að viðurkenna að væntingar mínar til bókar Þórarins Leifssonar, Bókasafns ömmu Huldar voru skýjum ofar, ekki síst vegna þess hvað mér þótti síðasta bók höfundar, Leyndarmálið hans pabba (2007) skemmtileg. Léttirinn var því gífurlegur þegar hún stóð undir þessum gríðarmiklu væntingunum. Bókin er sniðug, vel skrifuð og einkennist af því sem mér þykir vænst um við bækur Þórarins; þar er aldrei gert ráð fyrir því að börn séu heimskari en þau eru, eða saklausari en þau eru.
Bókasafn ömmu Huldar á dönsku • Upphlaup á bókahátíð • Viðtal í stórblaðinu Politiken
Forlagið Torgard hefur gert samning um útgáfu síðustu bók Þórarins Leifssonar, Bókasafn ömmu Huldar í Danmörku á næsta ári. Þórarinn vakti talsverða athygli með mannakjötsatriði sínu á Forum-bókamessunni í Kaupmannahöfn nýverið. Kynningin fór fram í tilefni af útgáfu bókarinnar Leyndarmálið hans pabba í Danmörku. Færeyskur kokkur útbjó sérstakan fingramat sem líktist mannakjöti. Gestir messunnar gæddu sér á fingrum seinheppinna smiða, heilaslettum kennara, endurskoðendastroganoffi og volgu dönsku blóði. Uppátækið olli á tímabili hálfgerðu öngþveiti fyrir utan bás Forlagsins Torgard sem gefur út bækur Þórarins í Danmörku.
Sýningunni á efstu hæð bókabúðar Eymundsson (Austurstræti 18) sem fjallað var um í Kiljunni er lokið. Megnið af fyrstu prentun seldist upp og eitthvað af seinna upplagi. Nú hefur verið ákveðið að hækka verðið á þeim myndum sem eftir eru úr 25000 í 30000. Þeir sem hafa keypt eða pantað nú þegar geta því glaðst yfir hækkandi gengi mynda sinna. Næsta haust verður haldin sýning í Kaupmannahöfn í tilefni af útgáfu Bókasafns ömmu Huldar í Danmörku.
Bókasafn ömmu Huldar er að mínu viti dæmi um barnabók þar sem höfundurinn er fyrst og fremst á höttunum eftir góðri sögu og með
sögunni vill hann sýna fram á ákveðna hluti – og getur stílfærum höfundi nokkurntímann verið of mikið niðri fyrir? Jórunn Sigurðardóttir / Seiður og Hélog - RUV
„Pottþétt besta bankahrunsbókin fyrr og síðar. Mér finnst ég alltaf hafa himinn höndum tekið þegar ég rekst á svona flottar, væmnislausar en samt hlýjar barnabækur. Svona á að gera þetta!“ Guðrún Eva Mínervudóttir
„Bókasafn Ömmu Huldar eftir Þórarin Leifsson er eiginlega dæmisaga um þensluna og þau gildi sem menn gleymdu eða seldu á uppgangsárunum.“ Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Bókasafn ömmu Huldar er skrifuð fyrir börn á aldrinum 9-99 ára. Henni verður dreift í allar betri bókabúðir 20. október. Þetta er 216 síðna bók með 36 svarthvítum myndskreytingum.